Aðalvalmynd

Tenglar

Gagnasafn

Hryðjuverk á Íslandi.SvaðalegaFínt

Kannski ekki alveg hryðjuverk, en það er bara túlkunaratriði hjá hverjumogeinum, held ég. En samt frekar skrítið að þetta skuli vera gert nánast akkruat 5 árum eftir 11.September. Allaveganna er ég ekki ánægður með þennan verknað hjá Kananum. 

Jú, hryðjuverk á Íslandi, og það grimmileg. Fóru kannski framhjá mörgum en ekki mér. Sá frétt um þetta á heimasíðu Víkurfrétta. Ég er að tala um förgun drykkja frá Varnarliðinu. Við erum ekkert að tala um að þeir hafi verið að henda því sem er neðst í flöskunni, heldur aðeins meira.

 

 


 
Það hafa væntalega fallið eitthver tár hjá unga fólkinu þegar það sá myndirnar af stórvirkri vinnuvél verða kremja gosdósirnar, en einsog flestir vita þá geta fá börn verið án goss í lengri en 20mín.
Hvað þá um eldra fólkið, og reyndar yngri liðið líka sem horfði á stórvirku vinnuvélina kremja bjórdósinar. Úff....



En hvað hefði átt að gera við alla þessa drykki? 

Ég hefði klárlega pantað nokkrar flugvélar og flogið með drykkina eitthvert til Afríku. Þar er nóg af tómum mögum, og manneskjum sem hafa litla sem enga næringu fengið í mörg ár. Hefði ekki verið skynsamlegra að láta þau hafa þessa drykki..?
 

Annars hefði ég verið nokkuð sáttur ef Kaninn hefði bara haldið eitt gott teiti fyrir okkur Suðnesjamennina þarna uppá Velli, og haft frítt áfengi og gos fyrir þá sem það vilja frekar. Þá hefðu þetta verið hetjur, en eru núna bara Apar.



Horfa þyrstum og reiðum augum á sjónvarpfréttir NFS.

Auglýsing

Leit

Könnun

"Á bak við hvert afrek er hreykin eiginkona og undrandi tengamóðir."